
Ég var í Mauritaníu í lok nóv og byrjun des. Var þar í þjóðgarðinum Banc d'Arguin að aðstoða við fuglarannsóknir. Þessi þjóðgarður hefur að geyma einna stærstu vetrarstöðvar evrópska vaðfugla en um 2,4 milljón vaðfugla er á leirunum í garðinum. Á myndinni er Great White Pelecan (
Pelecanus onocrotalus) en hann verpir á eyjum á svæðinu. Hann hefur vænghaf frá 220-360 cm en til samanburðar er okkar örn með um 240 cm.
4 ummæli:
Eigi þið örn sem er með 240cm vænghaf???..Hvar geymirðu kvikindið???
Kveðja frá
Óðni í Perú!!!
Hann er á safninu hjá okkur, var keyrt á hann. Hann er reyndar líklega bara með 2 m vænghaf.
Böddi
Segðu mér eitthvað sem ég veit ekki sko ... alveg old news ahaaaa veit allt um þennan Örn ú jeeee kv lilla syssssss í borg óttans
p.s. láttu þér batna! saknaði þín í gær þurfti að horfa ein á dexter! var pínu hrædd
Skrifa ummæli